Sony Xperia E4g - Almennar myndavélarstillingar

background image

Almennar myndavélarstillingar

Yfirlit yfir tökustillingar

Sjálfvirk greining umhverfis

Hagræddu stillingunum þínum eftir umhverfi.

Handvirkt

Breyttu stillingum myndavélarinnar handvirkt.

Andlit í mynd

Taktu myndir með myndavélinni að framan og aftan á sama tíma.

Margar myndavélar

Taktu upp sama umhverfið frá mörgum sjónarhornum á einum skjá.

Live on YouTube

Sendu myndskeið út beint á YouTube™.

AR áhrif

Taktu ljósmyndir eða myndskeið með sýndarumhverfi og táknum.

Skapandi áhrif

Bættu áhrifum við myndir eða myndskeið.

Timeshift burst

Finndu bestu myndina í röð mynda.

Social live

Sendu myndskeið út beint á Facebook™.

Víðmynd

Taktu gleiðhyrndar myndir og víðmyndir.

Mynd með hljóði

Taktu myndir með bakgrunnshljóðum.

AR skemmtun

Leiktu þér með sýndarhluti í myndglugganum og auðgaðu myndirnar eða myndskeiðin þín.

Andlitslagfæring

Taktu myndir með rauntímastílhrifum.

75

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sjálfvirk greining umhverfis

Sjálfvirk greining umhverfis greinir við hvaða aðstæður þú ert að taka mynd og aðlagar

stillingar sjálfkrafa í samræmi við það til að tryggja að þú náir sem bestri mynd.

Handvirk stilling

Notaðu handvirka stillingu þegar þú vilt stilla myndavélina handvirkt.

AR áhrif

Þú getur sett AR (aukinn raunveruleika) áhrif á myndirnar eða myndskeiðin þín til að gera

þær skemmtilegri. Þegar myndavélin er notuð gerir þessi stilling þér kleift að samþætta

þrívíddarumhverfi í myndirnar eða myndskeiðin þín. Veldu aðeins umhverfið sem þú vilt

stilla stöðu þess í myndglugganum.

Skapandi áhrif

Þú getur notað mismunandi áhrif á myndirnar þínar eða myndskeið. Þú getur t.d. bætt

Fortíðaráhrifum við til að láta myndir virðast eldri eða Skissuáhrifum til að fá skemmtilegri

mynd.

Sweep Panorama

Þú getur tekið breið- og víðmyndir úr láréttri og lóðréttri stefnu í auðveldri halda inni og

sveiflu hreyfingu.

Víðmynd tekin

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og veldu svo .

3

Til að velja tökuátt pikkarðu á

.

4

Pikkaðu á skjáinn og færðu myndavélina hægt og stöðugt í stefnu hreyfingar sem

er sýnd á skjánum.

Timeshift-myndaröð

Myndavélin tekur 31 myndar myndaröð á tveimur sekúndum – einni sekúndu fyrir og eftir

að pikkað er á myndavélartakkann á skjánum. Þú getur því fundið hina fullkomnu mynd.

Timeshift-myndaröð notuð

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og veldu svo .

3

Taktu myndir. Myndarnir birtast á smámyndaskjánum.

4

Flettu í gegnum smámyndirnar, veldu myndina sem þú vilt vista og pikkað á .

Social live

Social live er myndavél sem tekur myndir af stillingum sem leyfa þér að senda myndskeið

beint á Facebook™ síðuna þína. Þú þarft að hafa virka internettengingu og skráð(ur) inn á

Facebook™. Myndskeið geta verið allt að 10 mínútna löng.

Til að dreifa myndskeiði með Social live

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á , veldu síðan .

3

Skráðu þig inn á Facebook™ reikning.

4

Pikkaðu á til að hefja dreifingu.

5

Til að taka mynd meðan á dreifingu stendur pikkarðu á .

6

Til að hætta dreifingu pikkarðu á .

Andlit í

Þú getur notað andlit í stillingu til að kveikja á fremri og aðalmyndavélum á sama tíma

þannig að þú getur tekið mynd af þér saman með viðfangsefninu.

76

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Stilling margfaldrar myndavélar

Stilling margfaldrar myndavélar gerir þér kleift að taka ljósmynd sem sameinar myndir frá

tveim ólíkum sjónarhornum og tækjum. Þú sérð tvær myndir í myndavélarglugga tækisins

þíns – aðra frá þinni eigin myndavél og hina frá tengdu Xperia™ tæki eða Sony myndavél

sem styður NFC og Wi-Fi direct tækni. Þú getur svo breytt því sem þú sérð í

myndglugganum áður en þú tekur ljósmynd.
Sértu til dæmis á tónleikum og vilt taka ljósmynd sem sameinar hljómsveitina frá einu

sjónarhorni og áhorfendur frá öðru geturðu notað stillingu margfaldrar myndavélar til að

ná sem bestum áhrifum.
Þú getur stillt margfalda myndavél með NFC, sem parar tækin tvö með því að nota Wi-Fi

dirct tækni. Bæði tæki verða að styðja NFC.

Stilling margfaldrar myndavélar er ekki fáanleg á öllum mörkuðum.

Stilling margfaldrar myndavélar notuð

1

Kveiktu á NFC á báðum tækjunum sem þú vilt tengja.

2

Kveiktu á myndavélinni í tækinu þínu.

3

Pikkaðu á og veldu svo .

4

Pikkaðu á á skjám beggja tækja.

5

Láttu NFC-nemasvæðin á tækjunum snertast. Bæði tæki ættu nú að vera tengd

með Wi-Fi direct tækni.

6

Þegar tækin eru tengd birtast tvær myndir í myndglugga tækisins þíns – ein úr

myndavélarglugganum þínum og ein úr myndglugga tengda tækisins.

7

Til að breyta myndunum í myndglugganum pikkarðu á

.

8

Breyttu myndunum að vild. Til dæmis geturðu pikkað á og haldið mynd og dregið

hana yfir á hina hlið myndgluggans til að breyta röðinni.

9

Þegar þú hefur lokið breytingum og ert tilbúin(n) að búa til sameinaða mynd

pikkarðu á

Lokið > .

Andlitsmyndir lagaðar

Notaðu þennan eiginleika til að laga andlitsmyndir jafnóðum til að tryggja sem besta

útkomu.

Hvernig andlitsmyndir eru lagaðar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og svo á .

3

Strjúktu upp eftir skjánum til að sýna stílval og veldu svo andlitsmyndastíl fyrir þínar

myndir.

4

Pikkaðu á skjáinn eða strjúktu niður eftir honum til að fela stílval.

5

Strjúktu til vinstri til að sýna rammaval og veldu svo skrautramma.

6

Pikkaðu á myndavélarskjáinn eða strjúktu til hægri til að fela rammaval.

Myndavélaforrit sótt

Þú getur sótt ókeypis eða greitt fyrir myndavélaforrit frá Google Play™ eða öðrum

stöðum. Áður en þú hleður niður skaltu ganga úr skugga um að þú sért með

nettengingu, helst Wi-Fi® til að takmarka gagnaumferðargjald.

Til að sækja myndavélaforrit

1

Opnaðu myndavélinaforrit.

2

Pikkaðu á og síðan á

HÆGT AÐ SÆKJA.

3

Veldu forritið sem þú vilt sækja og fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka

uppsetningunni.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingarstillingar til að ræsa myndavélina þegar skjárinn er læstur.

Einungis ræsa

Þegar þú dregur upp er aðalmyndavélin ræst úr svefnstillingu.

77

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ræsa og smella af

Þegar þú dregur upp er ljósmyndavélin ræst úr svefnstillingu og þú tekur mynd.

Ræsa og taka upp myndskeið

Þegar þú dregur upp er myndupptökuvélin ræst úr svefnstillingu og upptaka hefst.

Slökkt

Hnitamerking

Merktu myndir með upplýsingum um hvar þær voru teknar.

Snertimyndataka

Finndu fókussvæði og snertu svo myndavélarskjáinn með fingrinum. Myndin er tekin um

leið og þú tekur fingurinn af.

Hljóð

Veldu að kveikja eða slökkva á lokarahljóði.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

Hvítjöfnun

Stillir litajafnvægið í samræmi við birtuskilyrðin. Táknið fyrir hvítjöfnunarstillinguna er

tiltækt á myndavélarskjánum.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa til að passa við birtuskilyrðin.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .