Tækið ræst í fyrsta sinn
Þegar þú ræsir tækið í fyrsta skipti útskýrir uppsetningarhjálpin grunnstillingar tækisins og
aðstoðar þig við innskráningu í netreikninga og við að sérsníða tækið. Ef þú ert t.d. með
Sony Entertainment Network reikning getur þú skráð þig inn á hann og sett hann upp
undir eins.
Þú getur líka fengið aðgang að uppsetningarleiðsögn seinna í stillingavalmyndinni.
Kveikt á tækinu
Gakktu úr skugga um að rafhlaðan hafi hlaðist í minnst 30 mínútur áður en kveikt er á tækinu í
fyrsta skipti.
9
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
1
Haltu rofanum inni þar til tækið titrar.
2
Sláðu inn PIN-númerið fyrir SIM-kortið, ef beðið er um það, og pikkaðu svo á
.
3
Bíddu augnablik þar til tækið ræsist.
Símafyrirtækið lætur þér upphaflega í té PIN-númer SIM-kortsins en þú getur breytt því seinna
í stillingarvalmyndinni. Til að leiðrétta villu þegar þú slærð inn PIN-númer SIM-kortsins
pikkarðu á
.
Til að slökkva á tækinu
1
Haltu rofanum inni þar til valkostavalmyndin opnast.
2
Í valkostavalmyndinni pikkarðu á
Slökkva.
3
Pikkaðu á
Í lagi.
Nokkur tími getur liðið þar til slokknar alveg á tækinu.